It will all get better in time(8)
Vá hvað það er langt síðan ég hef bloggað, ég hef bara einfaldlega ekki nennt því:) hehe.. Jább ég er letingi.. og er stolt af því!
Annars er allt gott að frétta af mér, allt brjálað að gera í skólanum, hlutapróf II að ganga yfir og ritgerð í sögu og einhver skilaverkefni og svona.. Alltaf nóg að gera, en ég er nú alls ekki að kvarta. Gott að hafa einhvað fyrir stafni:)
Og svo á föstudaginn á bara að skella sér á Akureyri!! Ég get ekki beðið!! Þetta verður geðveikt gaman(: Fullt af fólki að fara, og ég og Steiney ætlum að gista heima hjá Guðrúnu Ástu frænku hennar;) Við erum búnar að kaupa okkur miðana og bíðum spenntar eftir að fara.. og svo var ég líka að kaupa mér peysu með logoi NMÍ aftaná;) vona að hún sé flott.. og ég held að fólk ætli að vera í henni á söngvakeppninni, annars var ég nú að heyra að sumir þyrðu ekki að vera í þeim í ótta við það að verða barnir. Hvað er málið með það?:o
Afhverju ætla allir að berja Ísfirðingana?? Ég veit það allavegna ekki(:
En jább.. ég er bara komin heim, með fullann ruslapoka af þvotti sem ég þarf að þvo. Vegna þess að báðar þvottavélarnar á vistinni eru bilaðar.. og það þurfa sko allir að þvo!! Ég varð ekkert smá pirruð þegar ég komst að þessu í dag. Svo ég skellti bara fötunum mínum í pokann og röllti útí rútu með Steiney og Salvöru sem voru einnig að fara heim.. og að þvo haha:)
En ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.. var bara kominn tími á eitt stikki blogg frá mér(a) of langt síðan síðast;) ætla að fara huga að þvottinum mínum og fara svo að halda áfram að lesa í sér grefur gröf. Þessi bók er geðveikt góð! Ég mæli eindreigið með henni!:)
En já.. síjú beibíkeikz;*
Nei nei, ég hef á tilfinningunni að þetta verði frábær helgi, sérstaklega fyrir partýdýrin sem eru með eitthvað á milli eyrnanna eins og við. =)
Gaman að sjá loksins blogg frá þér! Svo gaman að fylgjast með því hvað er að gerast hjá þér þarna einhverstaðar hinum megin við fjöllin...!:D
Hafðu það gott!, miss you:**

flott blogg annars :)
luuv á þig ; **