Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Brandari

Miðaldra kona kom inn í kvenfataverslun. Hún ætlaði að fá brjóstahaldara. Afgreiðslustúlkan spurði hvaða gerð það ætti að vera: "hjálpræðisherinn", "einræðisherrann" eða "blaðamaðurinn"? En konan skildi ekkert og spurði hver munurinn væri á þessum gerðum. Jú, sagði afgreiðslustúlkan, "hjálpræðisherinn" lyftir þeim föllnu, "einræðisherrann" sankar að sér eins miklu og hann getur og "blaðamaðurinn" gerir úlfalda úr mýflugu.

Uppskrift að hinu fullkomna lífi

21. apríl 2008 klukkan 16:18

Fyrst sæki ég um að komast að í þættinum You are what you eat og kemst þá að því að matarræðið er snarbilað, en eftir að kellingin fer þá held ég samt bara áfram að éta og fitna meira. Þá fer ég í megrunarkeppnina The Biggest Loser og næ af mér nokkrum kílóum. Nú til að fá final touchið á þetta þá fer ég í The Swan og fer í nokkrar lýtaaðgerðir og fitusog, ekki veitir af.. en í lokaþættinum þá kemst ég ekki áfram í fegurðarsamkeppni the Swan, þannig að þetta hefur ekki virkað alveg. Þá fer ég í Extreme Makeover og læt taka mig ærlega í gegn, skipti bara um andlit og sýg alla fitu úr líkamanum.

Þá er ég heldur betur orðin flott og fer í Americas Next Top Model þáttinn og geri gott þar.. en tapa. Nú er ég orðin soldið fúl og einmana, á engan kall nebblega. Best að fara í Bachelorette og ná mér í einn ríkan og myndarlegan. Geri það, en þegar þáttaröðin og það er búið, vantar einhverja spennu í sambandið, þannig að við förum í Temptation Island... en þar endar það með að við hættum saman því við héldum bæði framhjá. Þá langar mig bara að vera dáldið sjálfstæð og verða rík..

Þannig að ég fer í Survivor, þrauka alveg í 36 daga en lendi í 3. sæti ohhh ég fæ ekki einu sinni 100 þús dollara.. fer heim, alveg í rusli. En ég er ennþá sæt eftir lýtaaðgerðirnar og sílíkonbrjóstin hanga ennþá uppi.. og þar sem mig langar aftur í kærasta, þá skrái ég mig í Djúpu laugina.. næ mér þar í einhvern lúða sem býr í ljótri íbúð í Fellunum og er frekar subbulegur. En það er allt í lagi, ég hringi bara í vini mína í Queer eye for the Straight Guy og þeir koma og henda manninum mínum í klippingu og kaupa ný föt á hann, rí-dekkorreita svo íbúðina, allt voða flott og hann biður mig um að giftast sér í lok þáttarins, sem ég geri.

Við förum þá auðvitað með brúðkaupið í Brúðkaupsþáttinn Já og vinnum svo ferð í Karabíska hafið, voða rómó. En á skemmtiferðaskipinu þá verð ég ólétt.. eignast svo krakka og eftir 2 ár er hann farinn að stjórna öllu, þannig að ég hringi í The Nanny og fæ hana til að kenna okkur að ala upp krakkann og láta hann ekki ráða öllu.

Nú er allt komið í drasl aftur.. Þannig að ég hringi bara í Heiðar vin minn Snyrti og fæ hann að koma með þáttinn Allt í drasli og taka til... vá hvað það verður allt fínt hjá okkur! Þá er nú kominn tími til að hringja í Völu og við komum í Innlit Útlit, en við þurfum svo að stækka við okkur því að það er annað barn á leiðinni, þannig að við förum bara með íbúðina í þáttinn Allt undir einu þaki, seljum hana og kaupum stærri.

Árin líða og þetta endar allt með því að ég er búin að skilja við kallinn sem hélt framhjá mér, lýtaaðgerðirnar sem voru gerðar fyrir 15 árum komnar í klessu, ég er ljót, feit, einstæð 2ja barna móðir sem á ekki neitt.. þannig að ég fer bara í Fólk með Sirrý og væli yfir þessu öllu saman!

msn_icons_doll_Love_gotstyle msn_icons_doll_Love_gotstyle Make Up

 
Anna;D
oh berglind ! hættu þessari sjálfsvorkun! :D nei gríín!!!
þú ert megabeib:* :D love jú;) :D
hvað segiru um spjall bráðlega ?;)
#1
22. apríl 2008 klukkan 19:21
Hehe já anna.. ég skal reyna að hætta:/ gengur samt ekkert svo vel:s
En jább:) ég er game í spjall:)
þú hringir bara;)
#2
22. apríl 2008 klukkan 20:58
 
anna lóa
sweeet;D nehei þú bjallar í mig, þú ert well uppteknari en ég;) *ifyougetmypoint* (A);D
#3
22. apríl 2008 klukkan 21:58
Hahaþú ert snillingur ;'D
love á þig beib..
elska þig til tunglsins og aftur tilbaka milljón sinnum
#4
23. apríl 2008 klukkan 01:20

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Berglind
  • Staður: Þingeyri
  • Atvinna: Námsmaður með meiru
  • Hjúskaparstaða: laus og liðug;)
  • Um mig: Ég er 16 ára að verða 17 og kem frá Þingeyri, á afmæli í nóvember. Ég geng í Menntaskólann á Ísafirði, og líkar það bara ágætlega:) Mér finnst fjólublár litur rokka feitann.. ef það er eitthvað fleira þá er msnið mitt berglind_inga@hotmail.com myspace.com/berglind_inga ;)
  • Annað: Þú ert Best/ur ef þú kommentar;);**

Könnun

hvort er það Smáralindin eða Kringlan?