Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Brandari

Miðaldra kona kom inn í kvenfataverslun. Hún ætlaði að fá brjóstahaldara. Afgreiðslustúlkan spurði hvaða gerð það ætti að vera: "hjálpræðisherinn", "einræðisherrann" eða "blaðamaðurinn"? En konan skildi ekkert og spurði hver munurinn væri á þessum gerðum. Jú, sagði afgreiðslustúlkan, "hjálpræðisherinn" lyftir þeim föllnu, "einræðisherrann" sankar að sér eins miklu og hann getur og "blaðamaðurinn" gerir úlfalda úr mýflugu.

fram og til baka...

28. apríl 2008 klukkan 18:06
Jæja.. loksins komin á vistina, búin að vera í 4 daga fríi, eða það var sumardagurinn fyrsti þarna á fimmtudaginn og svo var dimmiteringin á föstudaginn svo við skelltum okkur bara suður að tjilla og svo í skírn hjá Brynhildi á sunnudaginn.  Litla stelpan hennar heitir Guðrún Ólafía.. bara sætt nafn á svo sæta stelpuJ í alvöru, hún er svooo falleg! Að ég bara næ mér ekkiJ
Í bænum var sko verslað, verslað og verslað! Enda er ég svo staurblönk núna að það er ekki fyndið.. hehe jú kannski pínu.En sorgarfréttir.. eða kannski ekki. Ég fór í sjónmælingu á fimmtudaginn og það kom í ljós að ég þarf að nota gleraugu, eða bara svona í skólanum.. ræð hvort ég nota þau bara dags daglega líka. Svo nú þarf ég ekki alltaf að fá lánuð gleraugu út um allt á öll myndaflippin mín;)(a) thíhí.
En já.. ég fór að pæla í gær, þegar við vorum að keyra heim. Ef maður er hræddur í bíl, maður er kannski að keyra á bröttum vegi og frekar langt niður.. þá grípur maður oft í haldfangið á hurðinni. Afhverju gerir maður það? Okey.. þá kannski finnst manni maður öruggari, en ef maður pælir í því, þá er eginlega enginn tilgangur í því.. því ef maður keyrir útaf, þá hvort eð er fylgiru bara bílnum. Skiptir engu máli hvort þú haldir þér eða ekki? Ég held allavegna ekki.  Hehe.. ég hafði ekki mikið að gera á leiðinni eins og kannski sést(a)En að öðru.. vá hvað ég elska starfsfólk Hagkaupa! Vá!! Alltaf svo glaðleg og brosandi.. og alltaf svo hjálpleg að ég bara næ því ekki! NEI!!
Shitt.. ég fór í Hagkaup með Salvöru, og án gríns þá var ég bara hrædd þegar stelpan var að afgreiða mig. Hún horfði svona á mig eins og ég hefði drepið mömmu hennar eða eitthvað þaðan af verra.
Mig langaði bara helst til þess að snúa við og hringja í mömmu mína og biðja hana um að koma og passa mig
J haha nei okey ekki alveg.. en þið skiljið.
Mér finnst að svona afgreiðslufólk ætti að vera glaðlegt og alltaf tilbúið til þess að hjálpa. Allavegna reyndi ég alltaf að vera það þegar ég var að vinna í sjoppunni heima síðasta sumarJ
Auðvitað fara allir í vont skap af og til, en það á samt ekki að bitna á viðskiptavinunum..  

Hvert fór góða veðrið??! Það var svo gott veður hérna um daginn, en nú er bara komið skítaveður, og snjókoma!!:O hvað er málið?? Ég er ekki sátt.. alveg að koma sumarfrí,, og það er snjókoma!? Ég vil fá sól og sumar núna! Þá komast allir í gott skap, og ég fer til útlanda! Mmm.. það verður sko næææs:D

 
Nenni ekki að hafa þetta lengra.. J ætla að fara horfa á nágranna, og fara svo og fá mér að borðaJVerið bless og ekkert stress;)Síjú beibíkeikz;*
vá hvað þetta er einhvað allt í klessu.. en hvaðan koma þessi J málunum við eiginlega?:D
flott blogg og þú ert sæt með gleraugu!
#1
28. apríl 2008 klukkan 21:07
 
Mútta
Vildi bara kvitta, ég gái alltaf reglulega hvort það sé komið nýtt blogg svo ég geti fylgst með úr fjarlægð. Hringdu bara í mömmu næst til að passa þig þegar einhver er "vondur" við þig. Heyri í þér, mömmuknús. :-)
#2
29. apríl 2008 klukkan 14:07
hæ sætust
flott blogg ; **
#3
29. apríl 2008 klukkan 21:16

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Berglind
  • Staður: Þingeyri
  • Atvinna: Námsmaður með meiru
  • Hjúskaparstaða: laus og liðug;)
  • Um mig: Ég er 16 ára að verða 17 og kem frá Þingeyri, á afmæli í nóvember. Ég geng í Menntaskólann á Ísafirði, og líkar það bara ágætlega:) Mér finnst fjólublár litur rokka feitann.. ef það er eitthvað fleira þá er msnið mitt berglind_inga@hotmail.com myspace.com/berglind_inga ;)
  • Annað: Þú ert Best/ur ef þú kommentar;);**

Könnun

hvort er það Smáralindin eða Kringlan?